Vinafélagið

 

 

 

Vinafélag íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn

 

Stofnað hefur verið „Vinafélag íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn“. Markmið félagsins er að styrkja fjárhagslega stöðu safnaðarins og efla þannig starfsemi hans. Söfnuðinum er mjög þröngur stakkur sniðinn fjárhagslega og takmarkar það starfið sem fram fer. Stærstu útgjaldaliðir safnaðarins eru vegna messuhalds, sunnudagaskólans og síðast  en ekki síst fermingarfræðslunnar sem er mikilvægur þáttur í starfinu.

 

Þeir fjármunir sem söfnuðurinn hefur til rástöfunnar kemur frá kirkjunni á Íslandi.  Sá styrkur dugar því miður ekki fyrir því starfi sem við höfum reynt að halda uppi.

 

Þrátt fyrir eindreginn vilja og áhuga er við núverandi aðstæður enginn möguleiki á að efla starfið og tæpast hægt að halda í horfinu

 

Það er ósk safnaðarnefndarinnar að hægt verði að halda fleiri guðsþjónustur og efla frekar fermingarstarfið og starf sunnudagaskólans.

 

Safnaðarnefndin hefur lagt mikla vinnu í að finna fjáröflunarleiðir fyrir söfnuðinn.  Kannað hefur verið hvort kirkjuskattur sem Íslendingar greiða í Danmörku gæti runnið til íslenska safnaðarins.  Því miður er sá möguleiki ekki fyrir hendi.   Í Noregi hefur þetta verið hægt í mörg ár og styrkt fjárhagslega stöðu norska safnaðarins mikið. Hér í Danmörku þurfum við að standa á eigin fótum. Sú hugmynd kom upp að stofna Vinafélagið svo þeim sem annt er um starfsemi safnaðarins gefist kostur á að styrkja starfið á einfaldan hátt.  Slíkt er hægt annað hvort með einstaka framlagi eða reglulegu mánaðarlegu framlagi.

 

Eins og alltaf  er gott að hafa í  huga að margt smátt gerir eitt stórt.   Saman getum við staðið að öflugu og gefandi starfi innan safnaðarins.

 

Hér fyrir neðan má finna reikningsnúmer safnarins þar sem leggja má inn:

 

Danski reikningur:  reg 2102    0758 478 173, Nordea Kongens Nytorv. 

Íslenski reikningur:  0334 26 006663  kt.630798 2219, Arion banki.

 

Íslenski Söfnuðurinn í Kaupmannahöfn © 2013 • www.kirkjan.dk  • kirkjan@kirkjan.dk

www.kirkjan.dk