Laugardaginn, 18. apríl kl. 11 verður næsta Krakkakirkja. 

Við syngjum og dönsum á íslensku og leggjum mikla áherslu á huggulega samveru bæði fyrir börn og foreldra. 


Söngur, gleði og gaman! 
Krakkakirkjan er barna- og fjölskyldustund, hugsuð fyrir öll börn á aldrinum 1-8 ára. Við hittumst í Jónshúsi annan hvern laugardag, þar sem við eigum skemmtilega stund, dönsum og syngjum á íslensku. Eftir stundina er hlaðborð (brauð, djús og ávextir fyrir 10DKK) og huggulegheit þar sem krakkarnir geta litað og leikið sér saman.
Verið öll velkomin!