Skráning í fermingarfræðslu

Nú er hægt að skrá sig í fermingarfræðslu fyrir næsta vetur. Við hlökkum til að taka á móti nýjum hóp.
Stærstur hluti fræðslunnar fer fram í tveimur helgarferðum til Svíþjóðar þar sem við hittum íslenska krakka búsetta í Noregi og Svíþjóð. Farið verður til Svíþjóðar 18.-20.september 2026 og 30.apríl-2.maí 2027.
Fermingarmessa næsta árs verður laugardaginn 15. maí kl. 11 í Esajas kirkju.
Í ágúst verður kynningarfundur um fermingarfræðsluna í Jónshúsi.