|
Fermingarfræðslan
Farið var í fermingarfræðsluferð til Svíþjóðar helgina 23-25. sept. og eru myndir undir „Myndir frá starfi".
Fermingarfræðsla íslenskra barna í Danmörku fer fram í samstarfi við íslensku söfnuðina á Norðurlöndum. Íslenskir prestar í Svíþjóð og Noregi annast fræðsluna ásamt aðstoðarfólki.
Fermingarfræðslan er fjórskipt:
- Fermingarbarnabúðir á Åh Stiftsgård í Svíþjóð að hausti og vori. Þar fer fram kennsla og börnin njóta útiveru og góðrar samveru.
- Heimaverkefni sem fermingarbörnin leysa og senda niðurstöður í tölvupósti til viðkomandi prests.
- Þátttaka í guðþjónustum í íslenskum og/eða í dönskum kirkjum
- Fermingafræðsla í tengslum við guðsþjónustur Íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn.
Fermingarmótin á Åh stiftsgård eru mikilvægur upphafs- og lokaþáttur fermingarfræðslunnar. Þau eru haldin í september- og maímánuði. Þar gefst börnunum gott tækifæri til að kynnast hvert öðru og kennslutímar hafðir með öllum hópnum.
Verkefnin leysa börnin með aðstoð kennslubókarinnar „Bókin um Jesú" og Nýja testamentisins. Gídeonfélagið á Íslandi hefur gefið börnunum Nýja testamentið.
Skráning og umsjón með fermingarfræðslunni í Danmörku hefur Lárus Guðmundsson (larus@brostu.dk eða 22 13 18 10)
Dagsetningar fyrir fermingarfræðsluferðir til Åh Stiftsgård eru eftirfarandi:
Árið 2011/2012: 23-25. sept. 2011 og 11-13. maí 2012
Árið 2012/2013: 28-30. sept. 2012 og 3-5. maí 2013
Árið 2013/2014: 28-30. sept. 2013
|