|

|
Sunnudagaskólinn
Í vetur verður sunnadagaskóli í Jónshúsi 1. og 3. sunnudag hvers mánaðar og byrja stundirnar kl. 11. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá sem hentar börnum á öllum aldri. Við munum syngja mikið, læra um Jesú, kynnast Hafdísi og Klemma og ekki má gleyma Rebba, Mýslu og fjársjóðskistunni. Eftir stundirnar er boðið upp á kaffi, djús og kex og krakkarnir fá myndir að lita og límmiða og það gefst gott tækifæri til að spjalla og kynnast. Þeir sem vilja mega mjög gjarnan koma með eitthvað með kaffinu :)
Það verður ekki sunnudagaskóli í desember en þó munu sunnudagaskólakrakkarnir vera með á aðventustund í St. Paulskirkju 3. desember kl. 16. Síðsti sunnudagaskólinn fyrir jól er 20. nóvember.
Vel hefur verið mætt það sem af er vetri og vonum við að svo verði áfram. Hlökkum til að sjá ykkur,
Vera, Sandra María og Una
Ef þið hafið spurningar má senda tölvupóst á veragudm@hotmail.com
|