Laugardaginn, 18. apríl kl. 11 verður næsta Krakkakirkja.


Söngur, gleði og gaman!

Krakkakirkjan er barna- og fjölskyldustund, hugsuð fyrir öll börn á aldrinum 1-8 ára. Við hittumst í Jónshúsi annan hvern laugardag, þar sem við eigum skemmtilega stund, dönsum og syngjum á íslensku. Eftir stundina er hlaðborð (brauð, djús og ávextir fyrir 10DKK) og huggulegheit þar sem krakkarnir geta litað og leikið sér saman.
Verið öll velkomin!

