Fermingarfræðsla í íslenska söfnuðinum felst í fermingarferðalögum, fræðslustundum í Jónshúsi og þátttöku í helgihaldi. Á hverjum vetri fer fermingarhópurinn héðan tvisvar í ferðalag til Åh Stiftsgard í Svíþjóð. Það er fallegur staður rétt utan við Gautaborg. Þar hittum við íslensk fermingarbörn frá Svíþjóð og Noregi. Ferðirnar verða 18.-20.september 2026 og 30.apríl-2.maí 2027. Nokkrum sinnum yfir veturinn hittumst við svo í Jónshúsi í fræðslu, oftast í tengslum við Guðsþjónustur safnaðarins. Fermingarmessan verður laugardaginn 17.maí kl. 11 í Esajas Kirke . Það er einnig algengt að fermingarbörn séu í fræðslu hér þó svo að fermingin fari fram á Íslandi.